Áhættustýringarsvið
Áhættustýringarsvið bankans er sjálfstæð stjórnunareining og ber ábyrgð gagnvart bankastjóra. Í árslok 2016 voru 30 stöðugildi á áhættustýringarsviði. Framkvæmdastjóri sviðsins er Gísli S. Óttarsson.
Áhættustýringarsvið skiptist í fjórar einingar.
Lánagreining styður við og hefur eftirlit með umsóknarferli lána og lánveitingarákvörðunum, frá undirbúningi umsóknar til útgreiðslu láns. Einingin er helsti tengiliður áhættustýringar við lánanefndir bankans og útbýr skriflega umsögn um erindi sem fara fyrir lánanefndir.
Útlánaeftirlit fylgist með ótryggum og niðurfærðum útlánum gagnvart einstökum viðskiptavinum, ákvarðar niðurfærslu lána og gefur skýrslu um niðurfærslur og afskriftir til lánanefndar Arion banka. Einingin hefur einnig eftirlit með safnlægri útlánaáhættu í lánasafni bankans, eins og samþjöppun á einstaka lántakendur eða á einstakar atvinnugreinar, auk þess að hafa eftirlit með fjárhagslega tengdum aðilum og stórum áhættuskuldbindingum til fjárhagslega tengdra aðila.
Efnahagsáhætta greinir og hefur eftirlit með öllum kerfislægum ójöfnuði og áhættum í efnahagsreikningi bankans, þ.m.t. eigin fé og ber ábyrgð á framkvæmd innra mats á eiginfjárþörf (ICAAP) og lausafjárþörf (ILAAP) bankans. Einingin ber ábyrgð á þróun og rekstri lánshæfismatslíkana og álagsprófa.
Rekstraráhætta tilheyrir annarri varnarlínu og hefur eftirlit með áhættu sem tengist daglegum rekstri bankans. Deildin styður svið bankans við innra eftirlit og ber ábyrgð á framkvæmd áhættusjálfsmata, skráningu tapsatburða og gerð verkferla.
Gagnastjóri bankans tilheyrir áhættustýringu en hlutverk hans er að skipuleggja og fylgja eftir umbótum í gagnamálum og stjórnarháttum fyrir gögn bankans í heild.
Nánari umfjöllun um áhættustýringu bankans er að finna í umfjöllun um áhættustýringu og í áhættuskýrslu bankans fyrir árið 2016.
Regluvarsla
Regluvarsla er sjálfstæð stjórnunareining sem heyrir undir bankastjóra og starfar samkvæmt erindisbréfi frá stjórn. Í árslok 2016 voru 7 stöðugildi í regluvörslu. Regluvörður er Hákon Már Pétursson.
Hlutverk regluvörslu er að tryggja með skilvirkum fyrirbyggjandi aðgerðum að Arion banki starfi í hvívetna í samræmi við lög, reglur og góða viðskiptahætti og stuðla að góðri fyrirtækjamenningu hvað þetta varðar.
- Regluvarsla veitir yfirsýn yfir gildandi lagakröfur og ábyrgð og stuðlar að því að starfsfólk þekki og skilji skyldur sínar og fái viðeigandi fræðslu, ráðgjöf og upplýsingar um þær kröfur sem gerðar eru til verklags hverju sinni
- Regluvarsla stuðlar að því að innra eftirlit sé skilvirkt og að brugðist sé við frávikum
- Regluvarsla stendur vörð um að þjónusta bankans sé ekki misnotuð og gætir þess að bankinn þekki mótaðila sína, eðli sérhvers viðskiptasambands og skyldur sínar þar að lútandi
- Regluvarsla hvetur til gagnsæis og gætir þess að upplýsingagjöf til viðskiptavina, fjárfesta og stjórnvalda sé fullnægjandi
- Regluvarsla hvetur til ábyrgrar meðferðar trúnaðarupplýsinga
Innri endurskoðun
Innri endurskoðandi er skipaður af stjórn og heyrir beint undir hana. Stjórn setur innri endurskoðanda erindisbréf sem skilgreinir ábyrgð og umfang vinnu hans. Hlutverk innri endurskoðunar er að veita óháða og hlutlæga staðfestingu og ráðgjöf sem ætlað er að vera virðisaukandi og bæta rekstur bankans. Endurskoðunin nær yfir bankann sjálfan, flest dótturfélög og lífeyrissjóði í rekstri hans. Í innri endurskoðun störfuðu 8 starfsmenn í árslok 2016. Lilja Steinþórsdóttir er innri endurskoðandi Arion banka.
Erindisbréf innri endurskoðanda, leiðbeinandi tilmæli FME um störf endurskoðunardeilda fjármálafyrirtækja nr. 3/2008 og alþjóðlegir staðlar um innri endurskoðun móta endurskoðunina. Skoðunum innri endurskoðunar bankans lýkur með endurskoðunarskýrslu þar sem settar eru fram áhættumiðaðar athugasemdir með tímasettum kröfum um úrbætur. Innri endurskoðun fylgir úrbótum eftir ársfjórðungslega.
Umboðsmaður viðskiptavina
Umboðsmaður viðskiptavina er skipaður af bankastjóra. Hlutverk hans er að tryggja sanngirni og hlutlægni gagnvart viðskiptavinum, koma í veg fyrir mismunun og tryggja að ferli við meðferð mála sé gegnsætt og skriflegt. Umboðsmaður viðskiptavina tók til skoðunar 160 mál á árinu 2016, samanborið við 185 mál árið 2015. Helgi G. Björnsson er umboðsmaður viðskiptavina Arion banka.