MONICA CANEMAN
Formaður
Monica er fædd árið 1954. Hún er sænsk og býr í Svíþjóð. Hún var fyrst kjörin sem stjórnarmaður á hluthafafundi 18. mars 2010. Hún er ekki hluthafi í Arion banka og er óháður stjórnarmaður. Monica er formaður lánanefndar stjórnar. Monica útskrifaðist með BS-gráðu í hagfræði frá Stockholm School of Economics árið 1976. Um þessar mundir situr Monica í stjórnum margra fyrirtækja og félagasamtaka og er formaður nokkurra þeirra.
Monica starfaði hjá Skandinaviska Enskilda Banken (nú SEB) frá 1977 til 2001 þar sem hún gegndi ýmsum störfum innan viðskiptabankahluta bankans, m.a. sem framkvæmdastjóri og varð aðstoðarforstjóri 1997 og var á sama tíma varamaður í stjórn bankans. Monica hefur einbeitt sér að stjórnarsetu í fyrirtækjum síðan 2001.
GUÐRÚN JOHNSEN
Varaformaður
Guðrún er fædd árið 1973. Hún var fyrst kjörin í stjórn Arion banka á hluthafafundi 18. mars 2010. Hún er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Guðrún er formaður starfskjaranefndar stjórnar og situr jafnframt í áhættunefnd stjórnar. Guðrún lauk MA-prófi í hagnýtri hagfræði frá University of Michigan, Ann Arbor í Bandaríkjunum, árið 2002 og ári síðar MA-prófi í tölfræði frá sama skóla. Hún lauk BA-prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands 1999. Í dag starfar Guðrún sem lektor í fjármálum við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og er stjórnarformaður ÞOR ehf. (Þróunar og rannsókna).
Guðrún hefur m.a. starfað sem verðbréfamiðlari, sérfræðingur í fjármálakerfisdeild Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem nefndarmaður í rannsóknarnefnd Alþingis sem leitaði orsaka og atburða sem leiddu til falls íslenska bankakerfisins árið 2008 og sem lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík auk þess að sinna stjórnarmennsku.
BENEDIKT OLGEIRSSON
Benedikt er fæddur árið 1961. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi 18. desember 2013. Hann er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Benedikt situr í áhættunefnd og lánanefnd stjórnar. Benedikt lauk meistaraprófi í framkvæmdaverkfræði og verkefnastjórnun frá University of Washington í Seattle árið 1987. Benedikt lauk prófi í byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1986. Benedikt starfar sem framkvæmdastjóri þróunar hjá Landspítalanum.
Benedikt hefur m.a. starfað sem framkvæmdastjóri hjá Atorku hf., framkvæmdastjóri Parlogis ehf. og sem aðstoðarforstjóri Landspítalans. Hann hefur jafnframt starfað sem stjórnandi hjá Eimskip og sem verkefnastjóri við mannvirkjagerð auk þess að hafa setið í stjórnum ýmissa félaga s.s. Promens hf., Icepharma hf., Parlogis ehf. og InterBulk Group sem er skráð í Kauphöllinni í London.
BRYNJÓLFUR BJARNASON
Brynjólfur er fæddur árið 1946. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi 20. nóvember 2014. Hann er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Brynjólfur er formaður endurskoðunarnefndar stjórnar og situr í lánanefnd stjórnar. Brynjólfur útskrifaðist með MBA-gráðu frá University of Minnesota árið 1973. Hann útskrifaðist með cand.oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1971. Í dag einbeitir Brynjólfur sér að stjórnarsetu í ýmsum fyrirtækjum.
Brynjólfur hefur starfað m.a. sem framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands, forstjóri Skipta, forstjóri Símans og sem forstjóri Granda hf. Hann starfaði jafnframt sem framkvæmdastjóri AB bókaútgáfu og sem forstöðumaður hagdeildar VSÍ. Brynjólfur hefur mikla reynslu af stjórnarsetu og hefur setið í fjölmörgum stjórnum í gegnum tíðina og gegnt stjórnarformennsku í nokkrum þeirra.
JOHN P. MADDEN
John P. Madden er fæddur árið 1973. John er með bandarískan og breskan ríkisborgararétt og býr í Bretlandi. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi bankans þann 15. september 2016. John er ekki hluthafi í bankanum og er háður stjórnarmaður. John útskrifaðist með BA gráðu í hagfræði frá Williams College í Massachusetts í Bandaríkjunum árið 1996. John starfar sem framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi ehf. sem á meirihluta hlutafjár í Arion banka í gegnum dótturfélag sitt, Kaupskil ehf. John hefur jafnframt starfað hjá BC Partners, Arle, ICG frá árinu 2014.
John hefur m.a. starfað hjá Arcapita Limited, fyrst í Bandaríkjunum en síðar í Bretlandi og hjá Lehman Brothers, New York. John situr í stjórn Fairhold Securitisation Limited og Noreco.
KIRSTÍN Þ. FLYGENRING
Kirstín er fædd árið 1955. Hún var fyrst kjörin í stjórn Arion banka á hluthafafundi 22. mars 2012 sem varamaður. Hún var svo kjörin sem aðalmaður á aðalfundi bankans 20. mars 2014. Hún er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Kirstín situr í starfskjaranefnd og endurskoðunarnefnd stjórnar. Kirstín lauk MA-prófi í hagfræði frá Northwestern University í Illinois í Bandaríkjunum árið 1983. Hún útskrifaðist með cand.oecon-gráðu frá Háskóla Íslands árið 1980. Kirstín hefur jafnframt lokið námi í hagnýtri fjölmiðlun við Háskóla Íslands og diplómaprófi í evrópskum samkeppnisrétti frá Kings College í London. Í dag starfar Kirstín sem sjálfstæður ráðgjafi.
Kirstín hefur m.a. starfað sem nefndarmaður í Rannsóknarnefnd Alþingis um Íbúðalánasjóð, stundakennari og aðjúnkt við Háskóla Íslands, sérfræðingur við Rannsóknarstofnun í fjármálum og hagfræði við Háskólann í Reykjavík og sem hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun, á Hagfræðisviði Seðlabanka Íslands, Fiskifélagi Íslands, Félagi íslenskra iðnrekenda og hjá OECD. Kirstín hefur sinnt ýmsum stjórnar- og nefndarstörfum auk þess að hafa setið í Úrskurðarnefnd fjarskipta og póstmála frá árinu 2008.
MÅNS HÖGLUND
Måns er fæddur árið 1951. Hann er sænskur og býr í Portúgal. Hann var fyrst kjörinn sem aðalmaður í stjórn Arion banka á aðalfundi hans 24. mars 2011. Hann er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Måns er formaður áhættunefndar stjórnar og situr í lánanefnd stjórnar. Måns útskrifaðist með BS-gráðu í hagfræði frá Stockholm School of Economics árið 1975. Måns starfar í dag sem stjórnarmaður í bankanum.
Måns starfaði áður hjá Swedish Export Credit Corporation (SEK) sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaþjónustu með sæti í framkvæmdastjórn bankans auk þess að hafa unnið bæði í Unibank sem forstöðumaður yfir Svíþjóð og Nordea sem forstöðumaður einkabankaþjónustu í Svíþjóð. Þá starfaði Måns hjá Swedbank m.a. sem forstöðumaður fyrirtækjasviðs og hjá Götabanken í London og Stokkhólmi auk þess að hafa gegnt ýmsum störfum hjá Hambros Bank í London. Måns hefur jafnframt starfað við kennslu og rannsóknir hjá Stockholm School of Economics.
ÞÓRA HALLGRÍMSDÓTTIR
Þóra er fædd árið 1974. Hún var fyrst kjörin sem aðalmaður í stjórn bankans á aðalfundi hans 21. mars 2013 eftir að hafa setið sem varamaður í stjórn síðan á aðalfundi bankans þann 24. mars 2011. Hún er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Þóra á sæti í endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd stjórnar. Þóra lauk kandídatsprófi í lögfræði við Háskóla Íslands árið 2000 og öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 2002. Í dag starfar Þóra sem sérfræðingur við lagadeild Háskólans í Reykjavík í vátrygginga-, samninga- og skaðabótarétti.
Þóra hefur m.a. starfað hjá tryggingarfélögunum Tryggingamiðstöðunni hf. og Sjóvá-Almennum tryggingum hf. Í dag situr hún í stjórn Virk-Starfsendurhæfingarsjóðs ses., stjórn Lögfræðingafélags Íslands og er framkvæmdastjóri Tímarits lögfræðinga. Þá er Þóra einnig formaður í úrskurðarnefnd í vátryggingamálum og formaður úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna.
Varamenn í stjórn eru:
Björg Arnardóttir, viðskiptafræðingur, Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir, lögfræðingur og Ólafur Örn Svansson, hæstaréttarlögmaður.