Samfélagsábyrgð Arion banka
Starfsfólk Arion banka leggur sig fram um að byggja upp góðan banka sem starfar með ábyrgum hætti og veitir viðskiptavinum sínum góða þjónustu. Okkar hlutverk er að hjálpa viðskiptavinum, einstaklingum, fyrirtækjum og fjárfestum að ná sínum markmiðum. Þannig sýnir Arion banki samfélagsábyrgð í verki fyrst og fremst með því að gera viðskiptavinum gagn og sinna hlutverki sínu sem fjármálafyrirtæki af kostgæfni og ábyrgð.
Arion banki leggur áherslu á sanngirni með hagsmuni viðskiptavina, starfsfólks, fjárfesta og samfélagsins alls að leiðarljósi. Starfsfólk starfar með gildi bankans að leiðarljósi sem eru; gerum gagn, látum verkin tala og komum hreint fram. Nánar má lesa um gildin í kaflanum um stefnu og framtíðarsýn. Siðareglur bankans eru jafnframt viðmið fyrir starfsfólk til að stuðla að ábyrgri ákvarðanatöku innan bankans. Siðareglurnar eru samþykktar af stjórn bankans.
Mótun nýrrar stefnu um samfélagsábyrgð
Á árinu 2016 var mótuð ný stefna um samfélagsábyrgð hjá Arion banka og helstu áhersluatriði skilgreind sem og hagsmunaaðilar. Nýja stefnan byggir á þeirri menningu sem skapast hefur innan bankans og því starfi sem unnið hefur verið á undanförnum árum, m.a. í tengslum við fjármálafræðslu, nýsköpun og betri bankaþjónustu. Yfirskrift stefnunnar er Saman látum við góða hluti gerast. Í byrjun árs kom starfsfólk saman á árlegum starfsdegi bankans og tók m.a. þátt í verkefnavinnu varðandi samfélagsábyrgð. Fjöldi góðra hugmynda kom fram á þeim degi sem nýttust í stefnumótuninni en að auki tók framkvæmdastjórn þátt í vinnustofum um samfélagsábyrgð og viðtöl voru tekin við innri hagsmunaaðila og aðila úr stjórn. Við þessa vinnu naut starfsfólk bankans liðsinnis ráðgjafa frá KPMG á Íslandi og í Svíþjóð.
Nýja stefnan byggir á þeirri menningu sem skapast hefur innan bankans og því starfi sem unnið hefur verið á undanförnum árum
Nýja stefnan var kynnt fyrir starfsfólki og samþykkt af stjórn síðla árs 2016 auk þess sem fjölda verkefna í tengslum við samfélagsábyrgð var komið í farveg á árinu.
Í lok árs 2016 varð Arion banki aðili að UN Global Compact, alþjóðlegri yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um innleiðingu ábyrgra starfshátta. Í ársskýrslunni horfum við til þeirra tíu grundvallarmarkmiða sem fram koma í sáttmálanum. Að auki er stuðst við nýleg viðmið sem Alþjóðasamtök kauphalla hafa sett fram fyrir skráð fyrirtæki á markaði og snúa að ófjárhagslegri upplýsingagjöf. Þau viðmið miða flest að því að uppfylla ákveðna þætti Global Reporting Initiative, alþjóðlegs staðals sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að miðla upplýsingum tengdum samfélagsábyrgð á gagnsæjan hátt.
Starfsfólk Arion banka leggur áherslu á að samfélagsábyrgð sé hluti af daglegri starfsemi bankans, ákvarðanatöku og ferlum. Í stað þess að útbúa sérstaka skýrslu um samfélagsábyrgð Arion banka er fjallað um málefnið í ársskýrslu bankans og er sérstök umhverfisskýrsla fyrir árið 2016 sem og samantekt um aðra ófjárhagslega mælikvarða hluti af ársskýrslunni.
Í stað þess að útbúa sérstaka skýrslu um samfélagsábyrgð Arion banka er fjallað um málefnið í ársskýrslu bankans og er sérstök umhverfisskýrsla fyrir árið 2016 hluti af ársskýrslunni
Stefna bankans um samfélagsábyrgð
Saman látum við góða hluti gerast
Við viljum vera öðrum fyrirmynd um ábyrga og arðbæra viðskiptahætti sem taka mið af umhverfi, efnahagslífi og því samfélagi sem við störfum í. Við setjum okkur í spor viðskiptavina og leitumst stöðugt við að gera betur í dag en í gær.
Við störfum á eftirsóknarverðum vinnustað þar sem þekking skapar verðmæti til framtíðar, viðskiptavinum, fjárfestum og samfélaginu öllu til góða.
Myndin hér fyrir neðan sýnir helstu hagsmunaaðila bankans sem og helstu áhersluatriði okkar í samfélagsábyrgð.
Ábyrgir og arðsamir viðskiptahættir
Við leggjum ríka áherslu á ábyrgan rekstur og góða viðskiptahætti og við viljum vera til fyrirmyndar í þeim efnum. Við ákvarðanatöku er leitast við að meta þá margvíslegu hagsmuni sem undir liggja. Þar horfum við ekki síður til langs tíma en skamms. Við leggjum mat á þann ávinning og þá áhættu sem ákvarðanir og lánveitingar geta falið í sér með ólíka hagsmuni í huga.
Á undanförnum árum höfum við komið að fjölda spennandi fjárfestingarverkefna með viðskiptavinum okkar, m.a. með það að markmiði að efla atvinnulíf hér á landi. Hjá bankanum starfar fjárfestingaráð sem tekur ákvarðanir um fjárfestingu og sölu eigna og hefur verið lögð áhersla á að þau félög sem eru í okkar eigu en í óskyldum rekstri skuli eftir föngum vera komið í sem breiðast eignarhald. Arion banki hefur því haft það markmið að skrá félög í kauphöll og höfum við komið að um 60% nýskráninga á undanförnum árum. Er það liður í að stuðla að endurreisn innlends hlutabréfamarkaðar og fjölga fjárfestingarkostum á almennum markaði.
Arion banki hefur því haft það markmið að skrá félög í kauphöll og höfum við komið að um 60% nýskráninga á undanförnum árum. Er það liður í að stuðla að endurreisn innlends hlutabréfamarkaðar og fjölga fjárfestingarkostum á almennum markaði
Starfandi er verkefnahópur sem vinnur að stefnumótun ábyrgra fjárfestinga hjá Arion banka. Í því verkefni er sjónum beint að eigin fjárfestingum, eignastýringu og lánveitingum.
Innri reglur og eftirlit
Starfsfólk Arion banka er meðvitað um þá staðreynd að starfsemi bankans hefur áhrif á ólíka hagsmunaaðila og samfélagið í heild sinni. Við höfum sett okkur starfsreglur, siðareglur og stefnur um ólíka þætti starfseminnar, s.s. um upplýsingagjöf, upplýsingaöryggi, peningaþvætti og jafnréttismál.
Siðareglum bankans er ætlað að stuðla að ábyrgri ákvarðanatöku í Arion banka. Siðareglurnar gilda jafnt um stjórn bankans, stjórnendur og aðra starfsmenn. Það er á ábyrgð bankastjóra að tryggja að þeim sé fylgt. Siðareglurnar eru samþykktar af stjórn bankans og skulu endurskoðaðar a.m.k. árlega. Sjá upplýsingar um siðreglur Arion banka hér.
Við leggjum áherslu á ábyrga stjórnarhætti. Skýrir ferlar við ákvarðanatöku eru lykillinn að ábyrgum stjórnarháttum og við vinnum með verkferla á öllum sviðum bankans í þeim tilgangi að tryggja faglega afgreiðslu mála. Arion banki hlaut viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum í desember 2015 að undangengnu formlegu mati á starfsháttum stjórnar og stjórnenda. Nánar má lesa um stjórnarhætti Arion banka hér.
Arion banki hlaut viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum í desember 2015
Áhættustýring er mikilvægur þáttur í starfsemi okkar. Það er stefna okkar að viðhalda þeirri menningu að áhættustýring sé verkefni okkar allra. Nánar má lesa um áhættustýringu Arion banka hér.
Aðgerðir gegn fjármunabrotum samfélaginu til hagsbóta
Fjármunabrot geta valdið samfélaginu verulegum skaða og grafið undan trausti og skilvirkni fjármálakerfisins í heild sinni. Arion banki tekur alvarlega þær skyldur sínar að standa vörð um viðskiptavini sína og þær eignir sem eru í umsjá bankans með því að sporna við fjármunabrotum.
Arion banki leggur ríka áherslu á að fyrirbyggja fjármunabrot og þau skaðlegu áhrif sem þau geta haft á viðskiptavini, rekstur bankans og samfélag okkar. Í þessum tilgangi veitir bankinn starfsfólki viðeigandi þjálfun og fræðslu, viðhefur skilvirkt eftirlit og á gott samstarf við löggæsluyfirvöld. Bankinn er einnig meðvitaður um hættu á hagsmunaárekstrum sem óhjákvæmilega fylgir starfseminni og hefur gripið til sérstakra ráðstafana til að fyrirbyggja að hagsmunaárekstrar skaði hagsmuni viðskiptavina.
Bankinn leggur sérstaka áherslu á aðgerðir til að fyrirbyggja:
- peningaþvætti, fjármögnun hryðjuverka og brot gegn viðskiptaþvingunum
- hagsmunaárekstra
- markaðsmisnotkun og innherjasvik
- sviksemi og spillingu
Að okkar mati er ein mikilvægasta ráðstöfunin til að fyrirbyggja fjármunabrot sú að þekkja vel þá aðila sem við störfum með eða eigum viðskipti við. Bankinn kannar bakgrunn þeirra sem starfa á hans vegum og aflar upplýsinga um viðskiptavini sína, bæði frá þeim sjálfum og með opinberum upplýsingaveitum, s.s. þjóðskrá og fyrirtækjaskrá.
Að okkar mati er ein mikilvægasta ráðstöfunin til að fyrirbyggja fjármunabrot sú að þekkja vel þá aðila sem við störfum með eða eigum viðskipti við
Sjálfvirkt eftirlit er hluti af þeim aðgerðum sem bankinn framkvæmir til að sporna við fjármunabrotum. Bankinn rekur ýmis tölvukerfi í þeim tilgangi að greina grunsamleg viðskipti eða bera kennsl á viðskiptavini sem kunna að teljast til áhættuhópa, s.s. er varðar spillingu, peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka. Þá er bankinn einnig á varðbergi gagnvart tölvuárásum, en sú áhætta vex samhliða því sem rafræn viðskipti færast í aukana.
Ekkert eftirlit er þó eins öflugt og vökul augu starfsmanna. Starfsfólk fær reglulega þjálfun, þar sem það er meðal annars frætt um atriði sem geta vakið upp grunsemdir. Árlega gengst starfsfólk okkar undir könnunarpróf til að ganga úr skugga um að þekking á peningaþvætti og hvernig komið er í veg fyrir slíkt sé fullnægjandi innan bankans. Til að tryggja þekkingu á meðferð trúnaðarupplýsinga er að auki árlega lögð könnun fyrir starfsfólk. Að auki eru haldin fjölmörg námskeið innan bankans m.a. um samkeppnisréttarstefnu bankans, hagsmunaárekstra og markaðssvik.
Starfsfólk fær reglulega þjálfun, þar sem það er meðal annars frætt um atriði sem geta vakið upp grunsemdir, og þurfa að standast regluleg próf
Starfsfólk er hvatt til að láta vita ef grunur vaknar um fjármunabrot, hvort sem um er að ræða athafnir af hálfu starfsfólks bankans, samstarfsaðila eða viðskiptavina. Starfsfólki býðst að senda ábendingar nafnlaust auk þess sem bankinn gætir trúnaðar um uppruna ábendinga nema annað sé skylt samkvæmt lögum. Allar ábendingar um hugsanlega ólögmæta háttsemi eru rannsakaðar af eftirlitseiningum bankans og tilkynntar til viðeigandi löggæsluyfirvalda eftir því sem tilefni er til.
Betri bankaþjónusta
Við leggjum ríka áherslu á að viðskiptavinir okkar fái framúrskarandi þjónustu. Liður í því er að byggja upp góð tengsl við viðskiptavini, stunda ábyrgar lánveitingar, bjóða upp á öfluga fjármálaráðgjöf og hvetja til sparnaðar. Við viljum að viðskiptavinir okkar geti átt í viðskiptum hvar og hvenær sem er, þegar þeim hentar, og því var eitt stærsta verkefni bankans árið 2016 að auka enn frekar stafræna þjónustu.
Við hlustum á rödd viðskiptavina okkar því þeirra ánægja og upplifun skiptir okkur máli. Reglulega framkvæmum við þjónustukannanir þar sem sérstaklega er horft til hversu líklegir eða ólíklegir viðskiptavinir okkar eru til að mæla með þjónustu okkar við aðra. Á árinu 2016 lögðum við grunninn að slíkum mælingum fyrir einstaka þjónustuþætti með það að markmiði að bæta undirliggjandi þjónustu.
Við hlustum á rödd viðskiptavina okkar því þeirra ánægja og upplifun skiptir okkur máli
Lykillinn að því að skilja þarfir viðskiptavina okkar eru góð tengsl. Arion banki er tengslabanki sem leggur áherslu á að byggja upp langtímasamband við viðskiptavini með því að bjóða upp á öfluga þekkingu, framúrskarandi þjónustu og fjölbreytt vöruframboð.
Við erum þakklát fyrir þær ábendingar sem okkur berast. Til þess að halda utan um það sem betur mætti fara í samskiptum okkar við viðskiptavini og almennt í starfseminni skráum við allar ábendingar og vinnum með markvissum hættir úr þeim. Við skráum að sjálfsögðu líka allar hugmyndir og hrós og komum í réttan farveg. Á árinu 2016 skráðum við um það bil 8.500 ábendingar, hugmyndir og hrós frá viðskiptavinum.
Á árinu 2016 skráðum við um það bil 8.500 ábendingar, hugmyndir og hrós frá viðskiptavinum.
Við lítum á ábendingar sem tækifæri til að bæta okkur og gera stöðugt betur í dag en í gær. Margar af þeim ábendingum sem við höfum fengið hafa orðið til þess að verklag hefur verið bætt og í sumum tilfellum hafa ábendingar verið uppspretta að stórum tæknilegum breytingum sem hafa haft víðtæk jákvæð áhrif á starfsemina og þjónustu við okkar viðskiptavini.
STAFRÆN ÞJÓNUSTA
Við höfum einsett okkur að vera fremsti stafræni bankinn á Íslandi. Við ætlum að auka aðgengi viðskiptavina okkar að stafrænum vörum og þjónustu bankans þannig að þeir geti afgreitt sig sjálfir með einföldum hætti.
Unnið er að því að sjálfvirknivæða og einfalda verklag þannig að það verði sem fæst handtök í öllum ferlum, bæði fyrir viðskiptavininn og starfsfólk bankans. Við nýtum gögn og greiningar til að taka góðar ákvarðanir og við ætlum að þróa snjallar og skapandi lausnir sem viðskiptavinum okkar finnst spennandi.
Með því að nýta okkur kosti tækninnar mætum við viðskiptavinum okkar þegar og þar sem þeim hentar. Tæknin mun auðvelda okkur að þekkja viðskiptavininn, skilja hans þarfir og uppfylla þær. Við erum til staðar fyrir þá sem vilja sinna bankaviðskiptum heima eða í gegnum snjallsímann en við erum jafnframt til staðar fyrir þá sem vilja koma til okkar og hitta okkur í eigin persónu.
Með því að nýta okkur kosti tækninnar mætum við viðskiptavinum okkar þegar og þar sem þeim hentar
Á árinu voru miklar framfarir í stafrænni þjónustu Arion banka. Nú er boðið upp á að stofna til viðskipta við bankann á netinu með rafrænum skilríkjum, boðið er upp á fullgilt greiðslumat á þremur mínútum á vef bankans, á vörutorgi netbankans geta viðskiptavinir stofnað nýja innlánsreikninga og kreditkort, hægt er að millifæra á hvern sem er í Arion appinu og skipta kreditkortareikningi með einum smelli. Á næstunni verður boðið upp á enn fleiri rafræna þjónustuþætti til að einfalda viðskiptavinum okkar bankaviðskiptin.
FJÁRMÁLALÆSI
Hluti af okkar þjónustu og ábyrgð gagnvart samfélaginu er að við látum okkur þekkingu viðskiptavina á fjármálum varða. Viðskiptavinir okkar hafa greiðan aðgang að upplýsingum um stöðu eigin fjármála, meðal annars í Arion banka appinu og netbanka. Þá bjóðum við upp á heimilisbókhald sem eykur skilning og yfirsýn yfir fjármál heimilisins og margvísleg námskeið um fjármál.
Hröð þróun fjármálaþjónustu og fjölbreyttir valkostir geta gert fjármálin flókin og erfið viðfangs en fjármálalæsi eykur skilning fólks á eigin fjármálum og þeim valkostum sem í boði eru. Fjármálalæsi nær til ýmissa þátta, allt frá því að fylgjast með fjármálum heimilisins, gera áætlanir og setja sér markmið, til stærri ákvarðana eins og kaupa á húsnæði og vals á lífeyrissparnaði. Stórar ákvarðanir í fjármálum geta haft mikil áhrif á fjárhagslega stöðu fólks til framtíðar en með bættu fjármálalæsi tekur fólk betri ákvarðanir sem eru byggðar á skilningi og þekkingu. Með bættu fjármálalæsi nær fólk einnig betri tökum á eigin fjármálum og leggur grunn að fjárhagslegum stöðugleika.
Stórar ákvarðanir í fjármálum geta haft mikil áhrif á fjárhagslega stöðu fólks til framtíðar en með bættu fjármálalæsi nær fólk einnig betri tökum á eigin fjármálum og leggur grunn að fjárhagslegum stöðugleika.
Við leggjum okkur fram um að bjóða viðskiptavinum vandaða fjármálaráðgjöf. Á árinu 2016 útskrifuðust 6 starfsmenn bankans sem vottaðir fjármálaráðgjafar og þar með eru vottaðir ráðgjafar sem starfa hjá bankanum orðnir 53.
Á árinu 2016 buðum við, líkt og síðustu ár, upp á fjölda námskeiða og fræðslufundi um hinar ýmsu hliðar fjármála og þannig hjálpum við viðskiptavinum okkar og samfélaginu að skilja betur þá fjölbreyttu valkosti sem eru í boði og að taka upplýstar ákvarðanir um eigin fjármál. Það er mikilvægt að byrja snemma og því leggjum við sérstaka áherslu á fjármálalæsi ungmenna og hefur fjöldi barna og unglinga sótt fjármálanámskeið bankans um land allt. Arion banki er aðalbakhjarl Stofnunar um fjármálalæsi sem beitir sér fyrir bættu fjármálalæsi í samfélaginu.
Við tökum virkan þátt í umræðu um fjármál og efnahagslíf í landinu og stuðlum að opinni og upplýstri umræðu með því að bjóða upp á fjölbreytta fundi og ráðstefnur um fjármál og efnahagslíf.
- Alls voru haldnir 10 fræðslufundir víða um land þar sem Jón Jónsson fræddi yfir 1.000 unglinga á aldrinum 14-16 ára um fjármál. Auk þeirra hófum við að bjóða upp á fjármálafræðslu með Jóni í framhaldsskólum landsins fyrir 16 -18 ára unglinga.
- Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi, hélt opna fræðslufundi á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni þar sem viðskiptavinum Arion banka og öðrum bauðst að sækja sér fjármálafræðslu sér að kostnaðarlausu.
- Bíbí, Blaki og Ari úr Sparilandi mættu á bæjarhátíðir víða um land, Arion banka fótboltamótið sem haldið var í Víkinni, Fossvogi, og fleiri skemmtilega viðburði. Þau eru nú orðin vel þekkt hjá yngstu kynslóðinni. Þá var lagður grunnur að fræðsluátaki fyrir yngstu kynslóðina í tengslum við Spariland.
- Alls sóttu um 500 manns fræðslufundi um lífeyrissparnað á vegum bankans.
- Greiningardeild Arion banka hélt 18 fundi víðs vegar um landið árið 2016 sem 1.300 manns sóttu. Auk funda fór greiningardeildin í fjölda viðtala við fjölmiðla auk þess að vera með erindi á hinum ýmsu fundum og ráðstefnum.
- Samtök fjármálafyrirtækja standa fyrir verkefni sem nefnist Fjármálavit og lítur að því að auka fjármálalæsi unglinga á efsta stigi grunnskóla og er Arion banki þátttakandi í því verkefni. Á þriðja tug starfsmanna Arion banka tóku þátt í að fræða ungmenni á vegum Fjármálavits á árinu 2016.
- Alls sóttu um 8.500 manns fræðslufundi, ráðstefnur og aðra viðburði á vegum bankans á árinu 2016. Heildarfjöldi viðburða sem Arion banki stóð fyrir og tók þátt í með samstarfsaðilum voru 114 talsins og gestirnir á þeim viðburðum u.þ.b. 47 þúsund manns.
STRAUMLÍNUSTJÓRNUN
Frá árinu 2012 hefur Arion banki unnið samkvæmt hugmyndafræði straumlínustjórnunar sem snýst í meginatriðum um að draga úr sóun og auka skilvirkni. Nú hafa 99% starfsmanna hlotið þjálfun og fræðslu í aðferðafræði straumlínustjórnunar. Í grunninn snýst verkefnið um að setja viðskiptavininn ávallt í aðalhlutverk og lágmarka það sem ekki eykur virði þjónustunnar. Stöðugar umbætur skipa stóran sess í þessari vegferð, þ.e. að við séum stöðugt að bæta þjónustuna okkar og gera betur í dag en í gær. Markmið ársins 2016 var að hver og einn starfsmaður myndi skrá og ljúka 6 umbótum á árinu en við gerðum gott betur og var meðalfjöldi lokinna umbóta á árinu 8 eða tæplega 7.000 umbætur í heildina.
Nú hafa 99% starfsmanna hlotið þjálfun og fræðslu í aðferðafræði straumlínustjórnunar
Haustið 2016 stóð Arion banki fyrir vel sóttri ráðstefnu um straumlínustjórnun í höfuðstöðvum bankans. Markmið ráðstefnunnar var að deila reynslu okkar af innleiðingu straumlínustjórnunar, hvað hefur gengið vel og hvað má læra af vegferðinni. Ráðstefnan var fyrst og fremst ætluð starfsfólki fyrirtækja í viðskiptum við Arion banka og öðrum áhugasömum aðilum utan bankans.
Eftirsóknarverður vinnustaður
Í Arion banka starfar þétt liðsheild öflugs starfsfólks. Við kappkostum að búa vel að fólkinu okkar og vinnum markvisst að því að skapa hvetjandi og jákvætt starfsumhverfi þar sem við getum öll vaxið í starfi og eflt kunnáttu okkar.
Við höfum skýra sýn í jafnréttismálum. Stefna bankans er að tryggja jöfn tækifæri og kjör starfsfólks af báðum kynjum og vera eftirsóknarverður vinnustaður fyrir konur jafnt sem karla. Í bankanum er starfandi jafnréttisnefnd og við höfum mótað jafnréttisáætlun sem og aðgerðaáætlun í jafnréttismálum. Arion banki er aðili að Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact sem er alþjóðlegt viðmið sem fyrirtæki geta haft að leiðarljósi, bæði til að efla konur innan fyrirtækja og sömuleiðis auka áhrif þeirra í samfélaginu.
Á árinu 2015 hlaut Arion banki Jafnlaunavottun VR, fyrstur íslenskra banka, sem meðal annars felur í sér innleiðingu á gæðakerfi í tengslum við laun og launaákvarðanir. Það að standast reglulegar úttektir á ferlum og launagreining á vegum óháðra úttektaraðila eru skilyrði fyrir áframhaldandi vottun og á árinu 2016 stóðst bankinn þær úttektir. Jafnframt náðist markmið bankans um að draga úr útskýrðum launamun um 1 prósentustig á milli ára. Úttekt sem gerð var í júní 2016 sýndi að launamunur kynjanna í sambærilegum störfum var 3,7%. Markmiðið fyrir árið 2017 er að munurinn verði 3,0% eða lægri.
Á árinu 2015 hlaut Arion banki Jafnlaunavottun VR, fyrstur íslenskra banka, sem meðal annars felur í sér innleiðingu á gæðakerfi í tengslum við laun og launaákvarðanir
Við framkvæmum vinnustaðagreiningu á hverju ári með það að markmiði að efla starfsumhverfið og starfsánægju. Mikilvægt er að gott jafnvægi ríki á milli vinnu og einkalífs og er starfsfólk hvatt með ýmsum hætti til að rækta eigin heilsu og áhugamál. Við líðum ekki einelti, kynferðislega áreitni né önnur óæskileg samskipti og höfum sett okkur stefnu gegn slíkri hegðun og reglur um hvernig bregðast skuli við ef upp kemst um slíkt.
Á árinu 2016 var boðið upp á um 200 vel sótt námskeið fyrir starfsfólk bankans. Heildarfjöldi starfsmanna sem sótti námskeiðin var í kringum 2.500 eða sem samsvarar u.þ.b. þremur námskeiðum á hvern starfsmann. Þess utan sótti fjölmargt starfsfólk hádegisfyrirlestra undir yfirskriftinni ,,Við tengjum betur“ sem haldnir eru reglulega. Fyrirlestrarnir eru opnir öllu starfsfólki bankans og er markmið þeirra að upplýsa starfsfólk um áhugaverð málefni innan bankans, einstök verkefni og starfsemi sviða og deilda svo fátt eitt sé nefnt.
Nánar má lesa um mannauðsmál Arion banka hér.
Skapandi efnahagslíf
Eitt af helstu áhersluatriðum Arion banka varðandi samfélagsábyrgð er að stuðla að skapandi efnahagslífi hér á landi. Á undanförnum árum höfum við komið að fjölda spennandi fjárfestingarverkefna með viðskiptavinum okkar, m.a. með það að markmiði að efla atvinnulíf hér á landi. Þá höfum við lagt á það áherslu að þau félög sem eru í okkar eigu en í óskyldum rekstri skuli eftir föngum vera komið í sem breiðast eignarhald og þau skráð í kauphöll. Arion banki hefur komið að rúmlega 60% nýskráninga á undanförnum árum og þannig stuðlað að því að endurreisa innlendan hlutabréfamarkað og fjölga fjárfestingarkostum á almennum markaði.
Við trúum því að hvatning til nýsköpunar hafi jákvæð áhrif á samfélagið og því leggjum við okkur fram um að styðja við frumkvöðla, meðal annars með því því að veita frumkvöðlum aðgengi að ráðgjöf og fjármagni og styðja fyrirtæki í rekstri til frekari vöruþróunar. Arion banki vinnur markvisst með og fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki, sem og fjárfesta. List og hönnun eru einnig stór partur af því að skapa hér á landi efnahagslíf sem einkennist af sköpunarkrafti og nýsköpun og styður Arion banki með myndarlegum hætti við slíkt starf.
NÝSKÖPUN
Með öflugri nýsköpun geta hugmyndir og þekking orðið að nýrri tækni, nýjum aðferðum eða jafnvel nýjum iðngreinum, hvort sem er innan þroskaðra fyrirtækja eða í frumkvöðlaumhverfinu. Öll viðleitni einstaklinga til nýsköpunar, uppbyggingar og nýrrar verðmætasköpunar er mikilvæg og við tökum slíka viðleitni alvarlega og íhugum vel hvort og hvernig við getum orðið að liði.
Við viljum skapa frjóan jarðveg og jákvætt og örvandi umhverfi fyrir nýsköpun og sprotafyrirtæki hér á landi og bjóðum við upp á fjölbreyttar leiðir og fjármálalausnir til þess að styðja við einstaklinga og fyrirtæki til að ná markmiðum sínum til framtíðar. Þannig styður Arion banki við bakið á nýsköpun allt frá grunnskólastigi til háskólastigs og áfram út í atvinnulífið.
Við viljum skapa frjóan jarðveg og jákvætt og örvandi umhverfi fyrir nýsköpun og sprotafyrirtæki hér á landi og bjóðum við upp á fjölbreyttar leiðir og fjármálalausnir
Vinsælir viðskiptahraðlar
Startup Reykjavík er stærsta nýsköpunarverkefni Arion banka en markmið verkefnisins er að skapa umhverfi þar sem frumkvöðlar njóta ráðgjafar og leiðsagnar reynslumikilla aðila í þeim tilgangi að gera hugmyndir sínar að veruleika og skapa þannig ný viðskiptatækifæri. Þátttökuteymum er boðið fjármagn í formi hlutafjár, þjálfun og vinnuaðstaða þar sem frumkvöðlar hafa tækifæri til að hittast. Teymin fá einnig tækifæri til að kynna viðskiptahugmyndir sínar fyrir innlendum og erlendum aðilum bæði hvað varðar þróun hugmyndanna sem og mögulega framtíðarfjármögnun. Startup Reykjavík er að fullu í eigu Arion banka en viðskiptahraðallinn er rekinn í samvinnu við Icelandic Startups. Startup Reykjavík var valinn besti viðskiptahraðall á Norðurlöndunum árið 2015 og á Íslandi árin 2015 og 2016 af Nordic Startup Awards.
Startup Reykjavík var valinn besti viðskiptahraðall á Íslandi árið 2016 af Nordic Startup Awards
Startup Energy Reykjavík (SER) er viðskiptahraðall sem byggir á sömu hugmyndafræði og Startup Reykjavík en þar er einblínt á verkefni og fyrirtæki í orkutengdum iðnaði og þjónustu. Verkefnið fór af stað vorið 2014 en þá tóku 7 fyrirtæki þátt. Vorið 2015 bættust önnur 7 fyrirtæki í hópinn sem og haustið 2016. SER er samstarfsverkefni Arion banka, Landsvirkjunar, GEORG, Nýsköpunarmiðstöðvar, Icelandic Startups og Iceland Geothermal.
Fjöldi umsókna í viðskiptahraðlana tvo sýnir að mikil þörf er bæði fyrir sprotafjármagn og virka leiðsögn til frumkvöðlafyrirtækja.
Fjármögnun fyrirtækja á sínum fyrstu stigum skiptir að jafnaði miklu máli. Fyrirtæki sem hafa farið í gegnum SR og SER hafa fengið viðbótarfjármögnun í kjölfar þátttöku sinnar í viðskiptahraðli. Í upphafi árs 2017 hafa fyrirtæki fengið fjármögnun sem nemur yfir 2.600 milljónum króna í hlutafé og styrki.
Samstarf við European Investment Fund um lán til lítilla og meðalstórra fyrirtækja
Arion banki hóf samstarf við European Investment Fund, EIF, á árinu og býður nú fjármögnun fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem hyggjast innleiða nýjungar í sinni starfsemi, hvort sem um er að ræða innleiðingu á nýjum vörum, ferlum eða þjónustu. Tilgangur samstarfsins er að veita fyrirtækjum aðgang að fjármagni á lægri vöxtum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og með því styðja við nýsköpun, örva atvinnulíf, rannsóknir og þróun. Lánin eru ætluð litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem hyggjast fjárfesta í:
- Nýrri framleiðslu
- Innleiðingu á nýjum vörum, ferlum eða þjónustu
- Þróun
- Nýrri aðferðafræði
- Tækni
EIF sjóðurinn ábyrgist hluta lánsins sem Arion banki veitir og viðskiptavinir bankans njóta ávinnings samstarfsins í lægri vaxtakjörum.
EIF sjóðurinn ábyrgist hluta lánsins sem Arion banki veitir og viðskiptavinir bankans njóta ávinnings samstarfsins í lægri vaxtakjörumEuropean Investment Fund er sjóður í eigu European Investment Bank, en sjóðurinn er í samstarfi við 74 fjármálafyrirtæki í 29 löndum Evrópu. Arion banki er eina fjármálafyrirtækið á Íslandi sem er í samstarfi við EIF.
Einn stærsti hluthafi í sprota- og vaxtasjóðnum Eyrir Sprotar
Arion banki er í samstarfi við Eyri Invest um rekstur sprota- og vaxtasjóðsins Eyrir Sprotar slhf. Eyrir Invest og Arion banki eru stærstu hluthafar sjóðsins en á árinu 2016 bætti bankinn við fjárfestingu sína í sjóðnum sem nemur nú tæpum 1,3 milljörðum króna.
Arion banki er í samstarfi við Eyri Invest um rekstur sprota- og vaxtasjóðsins Eyrir Sprotar slhf. Eyrir Invest og Arion banki eru stærstu hluthafar sjóðsins.
Aldrei of snemmt að byrja
Arion banki er einn af aðalstyrktaraðilum Nýsköpunarkeppni grunnskólanna en keppnin er ætluð nemendum í 5.-7. bekk. Alls bárust 1750 hugmyndir í keppnina árið 2016 og voru 27 valdar úr til að keppa um bestu hugmyndina.
Jafnframt er bankinn einn af aðalbakhjörlum Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi. Samtökin hafa það hlutverk að búa ungt fólk undir framtíðina og auka færni þess til atvinnuþátttöku og atvinnusköpunar með því að stuðla að aukinni nýsköpunar-, frumkvöðla- og viðskiptamennt í framhaldsskólum. Þannig er fumkvöðlastarf kynnt fyrir framhaldsskólanemum með það að markmiði að efla frumkvöðlaanda meðal ungmenna og þjálfa frumkvöðla framtíðarinnar. Árið 2016 tóku á fjórða hundrað nemenda í átta framhaldsskólum þátt og er útlit fyrir að fjöldinn verði enn meiri á næstu árum. Markmiðið er að gefa meirihluta íslenskra nemenda færi á að kynnast frumkvöðlastarfi af eigin raun í námi sínu. Arion banki er einn fjögurra öflugra bakhjarla verkefnisins.
Arion banki hélt fyrstur íslenskra banka forritunarkeppni
Í apríl 2016 hélt Arion banki, fyrstu íslenskra fjármálafyrirtækja, forritunarkeppni (e. hackathon) sem kallaðist FinTech partý þar sem þátttakendur í þverfaglegum teymum unnu að þróun fjármálatengdra afurða á móti opnu vefviðmóti (API) frá Arion banka og fleiri aðilum. Tólf teymi spreyttu sig í þessari 30 klukkustunda keppni í höfuðstöðvum bankans. Arion banki kallaði þannig á samstarf við íslenskt frumkvöðla- og fyrirtækjaumhverfi um þróun nýrra fjármálalausna og þjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Stuðningur við nýsköpun á flestum stigum samfélagsins
Við lítum svo á að með stuðningi við nýsköpun á hinum ýmsu stigum menntunar og þroska fyrirtækja séum við að hlúa að framtíðinni og stuðla að enn fjölbreyttara atvinnulífi hér á landi þegar fram líða stundir.
Arion banki styður þannig markvisst við nýsköpun frá grunnskólastigi til atvinnulífs.
List og hönnun
Arion banki stendur reglulega fyrir listasýningum og fyrirlestrum um myndlist í höfuðstöðvum sínum. Bankinn á stórt safn listaverka eftir marga af merkustu listamönnum þjóðarinnar og eru þau sýnileg í útibúum bankans og á starfstöðvum hans.
Í febrúar 2016 undirrituðu Arion banki og Hönnunarmiðstöð Íslands samstarfssamning til þriggja ára. Samstarfið felur meðal annars í sér stuðning Arion banka við HönnunarMars, sem er einn aðalvettvangur Hönnunarmiðstöðvar til að koma íslenskri hönnun og hugviti á framfæri. Arion banki varð þar með aðalbakhjarl ráðstefnunnar DesignTalks, sem fór fram 10. mars 2016 í Hörpu og markaði upphaf HönnunarMars. Á ráðstefnunni kom saman fjöldi alþjóðlegra hönnuða sem miðluðu af þekkingu sinni og reynslu en sérstök áhersla var lögð á hönnun sem leiðandi afl í nýsköpun.
Í febrúar 2016 undirrituðu Arion banki og Hönnunarmiðstöð Íslands samstarfssamning til þriggja ára. Samstarfið felur meðal annars í sér stuðning Arion banka við HönnunarMars, sem er einn aðalvettvangur Hönnunarmiðstöðvar til að koma íslenskri hönnun og hugviti á framfæri.
Hönnunarmiðstöð stóð einnig fyrir kaupstefnunni DesingMatch í samstarfi við bankann en viðburðurinn var haldinn í höfuðstöðvum bankans. DesignMatch má lýsa sem eins konar hraðstefnumóti milli hönnuða annars vegar og kaupenda og framleiðenda hins vegar. Hönnuðir fá tækifæri til þess að kynna hugmyndir sínar og hönnun og nota öll sín bjargráð til þess að mynda viðskiptasambönd á persónulegum grundvelli. Viðskiptasambönd skipta nefnilega miklu máli þegar kemur að því að gera góða hugmynd að veruleika.
Í apríl 2016 var opnuð sýning á verkum Kristins E. Hrafnssonar í höfuðstöðvum bankans. Sýningin hófst á opnum fyrirlestri Gunnars J. Árnasonar listheimspekings um verk Kristins. Á sýningunni mátti sjá ýmis verk frá tæplega 30 ára ferli Kristins sem og nýtt verk sem hann gerði sérstaklega fyrir sýninguna, Óríon og næsta nágrenni. Einnig var sett upp sýning í höfuðstöðvunum á verkum í eigu bankans, þar sem m.a. mátti finna verk sem nýlega hafa bæst við safnið, myndbandsverk eftir Egil Sæbjörnsson, ljósmyndaverk eftir Katrínu Sigurðardóttur og málverk eftir Huldu Stefánsdóttur.
Virðing fyrir umhverfinu
Við hjá Arion banka berum virðingu fyrir umhverfinu og leitumst við að lágmarka skaðleg áhrif rekstrarins á náttúruna. Umhverfisvitund endurspeglast í rekstri fyrirtækisins, stjórnun og daglegum störfum starfsmanna.
Umhverfismál hafa verið ofarlega á baugi hjá Arion banka undanfarin ár og áhersla hefur verið lögð á að tryggja heildstætt yfirlit yfir umhverfisáhrif sem af starfseminni hljótast. Bankinn hefur ýtt úr vör margs konar verkefnum sem ætlað er að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar. Meðal þeirra verkefna eru kaup á rafmagnsbílum fyrir innanbæjarakstur á vinnutíma, innleiðing á samgöngustefnu fyrir starfsfólk, stuðningur við skógrækt og átak í að bæta sorpflokkun og minnka prentun. Áherslur okkar á stafræna þjónustu skipa einnig stóran sess í að draga úr vistspori bankans og viðskiptavina hans.
Bankinn hefur ýtt úr vör margs konar verkefnum sem ætlað er að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar
Arion banki leitast við að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar. Umhverfismarkmið bankans eru að:
- Flokka úrgang frá bankanum eins og hægt er hverju sinni
- Fara sparlega með orku í starfsemi sinni
- Nýta sér umhverfisvænar lausnir við prentun pappírs með nýrri tækni
- Hvetja og styðja starfsmenn til að hafa umhverfismál að leiðarljósi í starfi og heima fyrir
- Velja umhverfisvæna vöru og/eða þjónustu við innkaup þar sem því verður við komið
- Stefna að aukinni hlutdeild pappírslausra viðskipta
- Minnka sóun
Loftslagsyfirlýsing Festu og Reykjavíkurborgar – vistsporið kortlagt
Loftslagsbreytingar af manna völdum eru ein af helstu áskorunum nútímans. Arion banki undirritaði loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar í nóvember 2015 og síðan þá hefur verið unnið að því með markvissum hætti að kortleggja vistspor bankans og draga enn frekar úr mengun í starfseminni. Góður árangur náðist á árinu í innleiðingu á umhverfishugbúnaði frá íslenska nýsköpunarfyrirtækinu Klöppum.
Arion banki undirritaði loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar í nóvember 2015 og síðan þá hefur verið unnið að því með markvissum hætti að kortleggja vistspor bankans og draga enn frekar úr mengun í starfseminni
Árið 2016 gaf Arion banki út sína fyrstu umhverfisskýrslu sem var fyrir árið 2015. Skýrslan innihélt meðal annars umhverfismarkmið bankans og aðgerðaráætlun til að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar sem markvisst var unnið samkvæmt árið 2016. Vel gekk að vinna að markmiðunum og árið 2016 var heildarkolefnisspor bankans, á þeim þáttum sem mælingar náðu yfir, 8,85% lægra en árið á undan, fór frá því að vera 1028 tonn CO2 ígildi í 936 tonn.
Árið 2016 gaf Arion banki út sína fyrstu umhverfisskýrslu sem var fyrir árið 2015
Við lítum á verkefnið í tengslum við umhverfismál sem ferðalag til næstu ára og stefnum á að auka enn betur yfirsýn yfir málaflokkinn með því að ná utan um stöðugt fleiri þætti starfseminnar sem hafa mengandi áhrif.
Í umhverfisskýrslu Arion banka fyrir árið 2016 má nálgast frekari upplýsingar um helstu verkefni, árangur og markmið Arion banka í umhverfismálum.
Stuðningur við samfélagið
Arion banki styður fjölda félagasamtaka og fyrirtækja til góðra verka í samfélaginu. Arion banki er meðal annars bakhjarl Stofnunar um fjármálalæsi, Hörpu tónlistarhúss, Hönnunarmiðstöðvar, Handknattleikssambands Íslands, Íþróttasambands fatlaðra, Nýsköpunarkeppni grunnskólanna og Ungra frumkvöðla. Að auki styðja útibú bankans um land allt hin ýmsu málefni í sinni heimabyggð.
Í febrúar 2016 undirrituðu Arion banki og Hönnunarmiðstöð Íslands samstarfssamning til þriggja ára. Samstarfið felur meðal annars í sér stuðning Arion banka við HönnunarMars, sem er einn aðalvettvangur Hönnunarmiðstöðvar til að koma íslenskri hönnun og hugviti á framfæri.
Arion banki var einn af aðalstyrktaraðilum alþjóðlegrar ráðstefnu sem fram fór í Hörpu í apríl 2016 undir yfirskriftinni Social Progress – What works? Efni ráðstefnunnar var þróun mælikvarða um félagslegar framfarir þjóða (Social Progress Index) sem er nýleg aðferð til að mæla hagsæld og samkeppnishæfi þjóða út frá samfélagslegum innviðum en ekki hagrænum eins og venjan er þegar verið er að meta frammistöðu ríkja. Í lok árs undirrituðu Arion banki og fyrirtækið Cognitio samstarfssamning til þriggja ára í tengslum við ráðstefnuna sem verður haldin í Reykjavík í annað sinn á vormánuðum 2017.
Arion banki var einn af aðalstyrktaraðilum alþjóðlegrar ráðstefnu sem fram fór í Hörpu í apríl 2016 undir yfirskriftinni Social Progress – What works? Efni ráðstefnunnar var þróun mælikvarða um félagslegar framfarir þjóða.
Á árinu 2016 studdi Arion banki sérstaklega við konur í tónlist. Í júní undirrituðu Arion banki, KÍTÓN, félag kvenna í tónlist, og Kex Hostel samstarfssamning um tónleikaröð þar sem íslenskar tónlistarkonur komu fram mánaðarlega á Kex Hostel og létu ljós sitt skína. Tilgangur KÍTÓN er að skapa jákvæða umræðu, samstöðu og samstarfsvettvang meðal kvenna í tónlist.
Samfélagsdagur Arion banka og Skjaldar, starfsmannafélags bankans, var haldinn í maí. Hópur starfsmanna og fjölskyldur þeirra tóku til hendinni og fegruðu umhverfið í kringum nokkur sambýli borgarinnar. Í tengslum við samfélagsdaginn og í tilefni 80 ára afmælis Skjaldar á árinu gaf bankinn 25 þúsund krónur fyrir hvern starfsmann til góðgerðamála sem tengjast börnum, eða alls um 22 milljónir króna. Hver starfsmaður gat valið til hvaða góðgerðasamtaka fjármunirnir runnu til.
Hópur starfsmanna og fjölskyldur þeirra tóku til hendinni og fegruðu umhverfið í kringum nokkur sambýli borgarinnar
Að auki styðjum við veglega við góðgerðamál eins og Krabbameinsfélag Íslands og Rauða kross Íslands og á landsbyggðinni styðja útibú bankans við fjölbreytt íþrótta- og menningarstarf í heimabyggð sinni.